Fréttir
Gullmót ÍF í frjálsum á Laugarvatni 30. júní og 2. júlí
Gullmót Íþróttasambands fatlaðra í frjálsum íþróttum fer fram á Laugarvatni dagana 30. júní og 2. júlí næstkomandi. Tímaseðil mótsins má nálgast á heimasíðu Frjálsíþróttasambands Íslands.
Skorum á fjölskyldur að mæta á Unglingalandsmót UMFÍ 31. júlí til 2. ágúst 2020 á Selfossi. ALLIR MEÐ
Á unglingalandsmóti UMFÍ 2020 verða nokkrar greinar í sundi og frjálsum sérmerktar sem íþróttir fatlaðra. Keppendur sem skrá sig þar geta einnig að sjálfsögðu tekið þátt í öðrum íþróttagreinum, margt nýtt hægt að prófa og skemmtun og samvera er aðalatriði...
Óskað eftir ábendingum um lausnamiðaða þjálfara sem vilja gefa öllum tækifæri
ÓSKAÐ ER EFTIR ÁBENDINGUM UM ÞJÁLFARA SEM HAFA AÐ MARKMIÐI AÐ ÖLL BÖRN FÁI TÆKIFÆRI og sem hafa eða eru að leita leiða til að öll börn fái að njóta sín á eigin forsendum hjá almennum íþróttafélögum Þjálfarar gegna lykilhlutverki þegar kemur...
Sumarfjarnám - Þjálfaramenntun ÍSÍ
Sumarfjarnám 1. 2. og 3. stigs ÍSÍ hefst í dag mánudaginn 22. júní nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. og 3. stigi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar...
Íslandsmót ÍF í frjálsum í Kópavogi 25.-26. júlí
Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra í frjálsum og meistaramót Íslands hjá FRÍ fara fram dagana 25.-26. júlí næstkomandi á Kópavogsvelli. Mótið er í framkvæmd frjálsíþróttadeildar Breiðabliks.
EM í frjálsum frestað til 2021
Evrópumeistaramóti IPC í frjálsum íþróttum sem fara átti fram í sumar í Póllandi hefur verið frestað til ársins 2021 vegna COVID-19 faraldursins.
Leiðbeiningar varðandi íþróttamannvirki og sundlaugar
Hér meðfylgjandi eru vefslóðir á nýjar leiðbeiningar vegna COVID-19, annars vegar varðandi íþróttamannvirki og hins vegar varðandi sundlaugar, ykkur til upplýsingar: https://www.landlaeknir.is/servlet/file/store93/item41632/Lei%C3%B0beiningar%20fyrir%20%C3%AD%C3%BEr%C3%B3ttamannvirki-22.05.2020.pdf https://www.stjornarradid.is/library/04-Raduneytin/Heilbrigdisraduneytid/ymsar-skrar/Lei%C3%B0beiningar%20fyrir%20sundlaugar%2013.05.2020.pdf Ofangreindar leiðbeiningar eru kannski ætlaðar forstöðumönnum íþróttamannvirkja og sundlauga en eru engu að síður upplýsandi og leiðbeinandi fyrir íþróttahreyfinguna almennt. ...
Afreksfólk ÍF fundaði með yfirmönnum landsliðsmála
Afreksíþróttahópur Íþróttasambands fatlaðra fundaði nýverið með yfirmönnum landsliðsmála hjá ÍF en þetta var í fyrsta sinn sem hópurinn kom saman með yfirmönnum landsliðsmála síðan samkomuskerðingar tóku gildi vegna COVID19-faraldursins.
Íþróttasamband fatlaðra 41 árs í dag
Íþróttasamband fatlaðra er 41 árs í dag. Sambandið var stofnað þann 17. maí 1979 og fór stofnfundurinn fram að Hótel Loftleiðum.
ÍM50 í Laugardalslaug 17.-19. júlí: Forskráning
Sameiginlegt Íslandsmót SSÍ og ÍF í 50m laug fer fram í Laugardalslaug dagana 17.-19. júlí næstkomandi. Nú þegar er hafin forskráning á mótið.
Sumarbúðir ÍF að Laugarvatni 3.-17. júlí
Þá er komið að því sem margir hafa beðið eftir - nýjar upplýsingar varðandi sumarbúðir Íþróttasambands fatlaðra á Laugarvatni sumarið 2020. Samkvæmt nýjustu upplýsingum frá viðbragðsteymi sóttvarnarlæknis er okkur óhætt að starfrækja sumarbúðirnar.
Þrjú ár frá heimsmeti Helga
Þann 6. maí 2017 setti Helgi Sveinsson nýtt heimsmet í spjótkasti sem stendur enn! Helgi kastaði þá 59,77 metra á opna ítalska meistaramótinu í frjálsum en þá var hann keppandi í flokki F42.
Skrifstofa ÍF opin 11.00-14.00 virka daga
Í dag 4. maí eykst starfsemi í íþróttamiðstöðinni í Laugardal á nýjan leik. Skrifstofur Íþróttasambands fatlaðra verða því opnar sem hér segir:
Haukur og Michel hlupu 10 km saman
Frjálsíþróttamennirnir Haukur Gunnarsson og Michel Masselter eru í hörku formi þessi dægrin og hafa verið duglegir að halda sér við þrátt fyrir takmarkanir vegna COVID19. Í gær tóku þeir sig til og hlupu saman 10 kílómetra. Haukur er enn að...
Íþróttastarf barna og ungmenna eftir 4. maí
Í gær, 21. apríl, birti heilbrigðisráðherra nýja auglýsingu um takmörkun á samkomum vegna farsóttar. Takmörkun á samkomum tekur gildi 4. maí 2020 kl. 00.00 og gildir til 1. júní 2020 kl. 23.59. Stjórnvöld endurmeta þörf á takmörkuninni eftir því sem...
Heill sé þér Vigdís Finnbogadóttir 90 ára
Íþróttasamband fatlaðra sendir heillaóskir til Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrverandi Forseta Íslands og þakkar ómetanlegan stuðning og samstarf. Á myndunum eru gullverðlaunahafar frá Ólympíumóti fatlaðra 1988, Lilja María Snorradóttir sundkona og Haukur Gunnarsson, frjálsíþróttamaður í móttöku hjá Vigdísi Finnbogadóttur, Forseta Íslands
Frá fagteymi ÍF: Hollráð á tímum COVID19
Fyrstu Covid-19 smitin hér á Íslandi voru greind í lok febrúar og skömmu síðar hófust takmarkanir á samskiptum manna á milli í námi, starfi og félagslífi hvers konar.
Sumarbúðum ÍF í júní frestað: Júlí til skoðunar
Sumarbúðum Íþróttasambands fatlaðra að Laugarvatni í júnímánuði hefur verið frestað. Búðirnar áttu að fara fram að Laugarvatni dagana 19. júní - 3. júlí.
Flokka- og bikarmóti ÍF í sundi slegið á frest
Flokka- og bikarmóti Íþróttasambands fatlaðra í sundi sem fara átti fram í maímánuði hefur verið frestað sökum COVID19 faraldursins.
Skrifstofa ÍF lokuð til 13. apríl. Nú gildir að huga að hvort öðru og gera heimaæfingar
Skrifstofa Íþróttasambands fatlaðra verður lokuð til 13. apríl. Vinsamlega sendið fyrirspurnir ef eru á netfang if@ifsport.is Netföng einstaka starfsmanna má sjá sjá á eftirfarandi slóð: https://www.ifsport.is/page/stjorn