Frjálsíþróttakonan Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir frá ÍR bætti um helgina Íslandsmetið í langstökki í flokki T37 þegar hún stökk 4,30 metra. Fyrra metið átti Matthyldur Ylfa Þorsteinsdóttir.
Bergrún sem keppti á Origo móti FH um helgina náði metinu í þriðja stökki en stökksería hennar um helgina var eftirfarandi:
X - 4,26/+1,0 - 4,30/+1,1 - 4,15/+0,0 - X - X
Til hamingju með árangurinn Bergrún!
Mynd/ Bergrún Ósk á HM fatlaðra í frjálsum 2019.