Fréttir

Komið að úrslitastundu

Seinni keppnisdagurinn á Íslandsmóti ÍF í einstaklingskeppni í boccia er kominn vel af stað á Ísafirði og úrslit þegar hafin. Keppni í rennuflokki er lokið en þar var Þórey Rut Jóhannesdóttir sigurvegari en Þórey keppir fyrir ÍFR.Hér að neðan fer...

Nes fimmfaldur Íslandsmeistari á Ísafirði

Íslandsmóti ÍF í einstaklingskeppni í boccia er lokið þar sem Nes frá Suðurnesjum varð fimmfaldur Íslandsmeistari, frábær árangur hjá félaginu sem einnig var það fjölmennasta með 39 keppendur. Íþróttafélagið Ívar á Ísafirði sá um mótahaldið og tókst það með stakri...

Íslandsmótið í boccia sett með flugeldasýningu á Ísafirði

Í gærkvöldi var Íslandsmótið í boccia sett á Ísafirði en í dag og á morgun verður keppt í fjölmörgum deildum enda rúmlega 200 keppendur skráðir til leiks frá 14 aðildarfélögum Íþróttasambands fatlaðra. Það var Arnþór Jónsson formaður Ívars á Ísafirði...

Nú renna öll vötn til Ísafjarðar: Íslandsmótið í boccia sett á morgun

Á morgun, 11. október, verður Íslandsmótið í einstaklingskeppni í boccia sett á Ísafirði en keppni stendur yfir dagana 12. og 13. október. Rúmlega 200 keppendur frá 14 aðildarfélögum Íþróttasambands fatlaðara munu taka þátt í mótinu og setja svip sinn á...

Æfingar í hjólastólakörfuknattleik komnar aftur á dagskrá

Kominn er af stað nýr hópur sem hyggur á að stunda hjólastólakörfuknattleik og munu æfingar fara fram tvisvar sinnum í viku í húsi ÍFR að Hátúni í Reykjavík. Æfingarnar verða á miðvikudögum kl. 21:30 og á sunnudögum kl. 19:40. Þetta er...

Frábær dagur að baki í Bláa Lóninu

Styrktar brunch til heiðurs og styrktar Íþróttsambandi fatlaðra sem haldinn var laugardaginn 29. september í Bláa Lóninu var afar vel heppnaður.  Fjöldi gesta lagði leið sína í Bláa Lónið til að heiðra íþróttafólkið sem náði einstaklega góðum árangri á Ólympíumóti...

Kolbrún sló met Sigrúnar Huldar frá árinu 1993 á Fjarðarmótinu

Hjörtur Már og Ólympíufararnir Kolbrún Alda og Jón Margeir voru í feiknastuði á Fjarðarmótinu í sundi laugardaginn 22. september. En samanlagt settu þau 8 Íslandsmet, Hjörtur 5, Jón 2 og Kolbrún eitt, en með því sló hún met sem Sigrún Huld...

Hópferðir Sævars gáfu ÍF nýja og glæsilega myndavél

Íþróttasamband fatlaðra fékk nýverið að gjöf nýja og glæsilega Canon 7D ljósmynda- og videotökuvél að gjöf frá Hópferðum Sævars. Nýja myndavélin mun og hefur gagnast afar vel í starfi sambandsins. Hópferðir Sævars bjóða upp á alhliða ferðaþjónustu fyrir innlenda og...

Frjálsíþróttanámskeið hreyfihamlaðra ungmenna 13 ára og yngri

Fimmtudaginn 4.október hefst frjálsíþróttanámskeið fyrir hreyfihömluð ungmenni 13 ára og yngri. Námskeiðið er kennt á fimmtudögum frá kl 16-17 og er undir stjórn Ingólfs Guðjónssonar. Æfingarnar fara fram í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal.Á námskeiðinu verður farið í flestar greinar frjálsíþrótta en...

Blue Lagoon hádegisbrunch til styrktar og heiðurs Íþróttasambandi fatlaðra

Hádegisbrunch að hætti matreiðslumeistara Bláa Lónsins verður í boði  laugardaginn 29. september kl 12.00  í Bláa Lóninu.   Öll innkoma vegna viðburðarins rennur til Íþróttasambands fatlaðra. Verð er 3.900 krónur fyrir fullorðna, 1.950 krónur fyrir 7-12 ára börn. Frítt fyrir 6 ára og yngri. Boðskort...

Laus pláss á námskeið hjá Hestamannafélaginu Herði

Enn eru laus pláss á námskeiðunum fyrir börn og ungmenni með fötlun hjá Hestamannafélaginu Herði sem byrja núna í byrjun október:Námskeið A: 2 laus plássNámskeið B: 1 laust plássNámskeið C: 2 laus plássNámskeið D: 1 laust plássNámskeið E: 2-3 laus...

Jón Margeir tólfti Íslendingurinn sem vinnur gull á Ólympíumóti

Sundmaðurinn Jón Margeir Sverrisson varð í London tólfti íslenski íþróttamaðurinn úr röðum fatlaðra til að vinna til gullverðlauna á Ólympíumóti. Jón Margeir, eins og frægt er orðið, vann til gullverðlauna í 200m skriðsundi í flokki S14, flokki þroskahamlaðra. Á 32 árum...

Fjarðarmótið í sundi á laugardag

Fjarðarmótið í sundi verður haldið í Ásvallalaug laugardaginn 22. september. Keppt verður í 26 greinum og þar á meðal 25 metra sundi fyrir þá sem eru að hefja sinn sundferil. Upphitun fyrir mótið hefst kl. 13:00 en mótið sjálft kl....

Forsetahjónin buðu Ólympíumótsförunum á Bessastaði

Í gær héldu forsetahjón Íslands boð að Bessastöðum til handa íslenska Ólympíumótshópnum sem gerði víðreist í London á Ólympíumóti fatlaðra. Hr. Ólafur Ragnar Grímsson hefur um árabil fylgst grannt með gangi mála hjá Íþróttasambandi fatlaðra en hann og Dorrit Moussaieff...

Fatlaðir sundmenn fara vel af stað - fjögur Íslandsmet á Akureyri

Dagana 14.-16. september s.l. fór fram Sprengimót Óðins í sundlaug Akureyrar. Keppt var í 25m útilaug og hitastigið var um 4 gráður keppnisdaganna en logn.Fjögur Íslandsmet fellu á mótinu hjá fötluðum. Fyrst kom Thelma Björg Björnsdóttir S6 og setti Íslandsmet...

Haustfjarnám 2012 þjálfaramenntun 1. stigs ÍSÍ

Haustfjarnám 1. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ mun hefjast mánudaginn 8. október nk. og tekur það átta vikur.Um er að ræða samtals 60 kennslustunda nám og er þátttökugjald kr. 25.000.-  Námið er almennur hluti þjálfaramenntunar ÍSÍ og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar.Það...

Íslenski hópurinn fékk glæsilegar mótttökur

Íslenski Ólympíumótshópurinn kom heim mánudaginn 10. september eftir hálfsmánaðar dvöl í London þar sem Ólympíumót fatlaðra fór fram. Með í farteskinu var gullmedalía Jóns Margeirs Sverrissonar og átta Íslandsmet sem hópurinn setti við afar krefjandi aðstæður. Móttökurnar voru allar hinar...

Heildarárangur Íslands á Ólympíumóti fatlaðra

Í gær lauk Ísland þátttöku sinni á Ólympíumóti fatlaðra í London þegar Helgi Sveinsson hafnaði í 5. sæti í spjótkasti í flokki T42. Íslenska sveitin kemur heim til Íslands á mánudag með ein gullverðlaun, heimsmet og átta Íslandsmet í farteskinu....

Síðasti keppnisdagurinn runninn upp

Í dag er síðasti keppnisdagurinn á Ólympíumóti fatlaðra hjá íslenska hópnum en að þessu sinni er það frjálsíþróttamaðurinn Helgi Sveinsson sem á sviðið. Helgi hefur daginn í 100m hlaupi í flokki T42 og skömmu eftir hlaupið tekur við keppni í...

Ísland hefur lokið keppni í London

Þá hefur íslenska sveitin lokið keppni á Ólympíumóti fatlaðra í London. Frjálsíþróttamaðurinn Helgi Sveinsson lokaði mótinu fyrir Íslands hönd og gerði það með glæsibrag er hann stórbætti Íslandsmetið sitt í spjótkasti í flokki F42. Helgi hóf daginn í dag í...