Fréttir
Helgi kynnir EM í frjálsum 2018!
Spjótkastarinn og heimsmethafinn Helgi Sveinsson verður einn af fjórum afreksíþróttamönnum sem kynna munu sérstaklega Evrópumeistaramót fatlaðra í frjálsum sem fram fer í Berlín í Þýskalandi sumarið 2018.
Paralympic-dagurinn 2017 í Laugardal
Dagskráin fyrir Paralympic-daginn 2017 er heldur betur vegleg að þessu sinni en Paralympic-dagurinn er stórskemmtilegur kynningardagur á íþróttastarfi fatlaðra á Íslandi. Líkt og tvö síðustu ár fer dagurinn fram í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal en nú höfum við einnig bætt við...
HM í sundi og lyftingum frestað vegna hamfaranna í Mexíkó
Alþjóðaólympíuhreyfing fatlaðra (IPC) sendi áðan frá sér tilkynningu þar sem fram kemur að heimsmeistaramótum fatlaðra í sundi og lyftingum sem fara áttu fram í Mexíkó 25. september - 7. október næstkomandi hafi verið frestað um óákveðinn tíma sökum hamfaranna sem...
HM í sundi í Malasíu 2019
Heimsmeistaramót fatlaðra í sundi í 50m laug fer fram í Malasíu árið 2019 en þetta tilkynnti Alþjóða Ólympíuhreyfing fatlaðra (IPC) í gær. Nú styttist óðar í HM í sundi 2017 sem fram fer í Mexíkó og ljóst að umtalsverð ferðalög...
París og Los Angeles næstu áfangastaðir Paralympics
Árið 2020 fara Paralympics fram í Tokyo í Japan en nýverið var greint frá því hvar næstu tveir Ólympíuleikar og Paralympics munu fara fram. Ólympíuleikarnir/Paralympics verða á eftir Tokyo haldnir 2024 í París í Frakklandi og árið 2028 í Los...
Íslandsmót ÍF í einstaklingskeppni í boccia 13.-14. október
Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra í einstaklingskeppni í boccia fer fram á Húsavík dagana 13.-14. október næstkomandi. Skráningargögn vegna mótsins hafa þegar verið sendi til allra aðildarfélaga ÍF en þá er vanhagar um skráningargögn geta haft samband á if@ifsport.is
Þorsteinn féll út í fyrstu umferð
Bogfimimaðurinn Þorsteinn Halldórsson er úr leik á heimsmeistaramóti fatlaðra sem nú stendur yfir í Peking í Kína. Þorsteinn skoraði 608 stig í morgun í svokallaðri „ranking“ keppni sem raðar mönnum inn í útsláttarkeppnina.
Þorsteinn mættur á HM í Peking
Heimsmeistaramót fatlaðra í bogfimi fer fram í höfuðborg Kína, Peking, dagana 12.-17. september næstkomandi. Ísland teflir fram einum keppanda á mótinu en það er bogfimimaðurinn Þorsteinn Halldórssón.
Andrew Parsons kjörinn forseti Alþjóða Ólympíuhreyfingar fatlaðra (IPC)
Átjánda Aðalfundi Alþjóða Ólympíuhreyfingar fatlaðra er nýlokið en fundurinn fór fram í Abu Dahbi. Bar þar helst til tíðinda að Brasilíumaðurinn Andrew Parsons var kjörinn forseti hreyfingarinnar. Parsons tekur við af Sir Philip Craven sem gegnt hefur formannsembættinu síðustu tvo...
Fótbolti án aðgreiningar / Football without restrictions Alþjóðlegt knattspyrnumót
16. september nk. fer fram alþjóðlegt knattspyrnumót í Egilshöll sem ber yfirskriftina Fótbolti án aðgreiningar / Football without restrictions en keppendur eru bæði fatlaðir og ófatlaðir. Íþróttafélagið Ösp og Knattspyrnusamband Íslands stýra undirbúningi og skipulagi mótsins í samstarfi við ÍF og...
Íslensk Getspá og Íþróttasamband fatlaðra endurnýja samstarfssamning sinn
Nýlega endurnýjuðu Íslensk Getspá og Íþróttasamband fatlaðra samstarfssamning varðandi stuðning fyrirtækisins við starfsemi ÍF og er samingurinn til tveggjá ára.
Fulltrúar Special Olympics á Íslandi fagna kjöri nýs varaformanns alþjóðalionshreyfingarinnar
Alþjóðalionshreyfingin hefur verið mikilvægur stuðningsaðili alþjóðasamtaka Special Olympics, ekki síst vegna verkefnisins Healthy Athletes. Í dag föstudaginn 25. ágúst hittu fulltrúar Special Olympics á Íslandi, nýkjörinn varaforseta alþjóðalionshreyfingarinnar, Guðrúnu Björt Yngvadóttir. Hún mun á næsta ári verða kjörinn forseti alþjóðahreyfingar...
Thelma setti fjögur Íslandsmet í Berlín
Fyrr í sumar átti sundkonan Thelma Björg Björnsdóttir, ÍFR, virkilega gott mót á Berlín Open í sundi en þar setti hún fjögur ný Íslandsmet.
Fannar Logi landaði bronsi á heimsmeistaramóti ungmenna!
Heimsmeistaramót fatlaðra ungmenna í frjálsum íþróttum stendur nú yfir í Nottwil í Sviss þar sem Ísland teflir fram fjórum keppendum. Í gær var fyrsti keppnisdagur þar sem Eikar-maðurinn Fannar Logi Jóhannesson landaði bronsi í langstökki þroskahamlaðra keppenda (F20). Fannar bætti...
Helgi með silfur í London!
Helgi Sveinsson hafnaði í dag í 2. sæti í spjótkasti á heimsmeistaramóti fatlaðra sem nú stendur yfir í London. Helgi kastaði lengst 56,74 metra sem dugði honum fyrir silfrinu.
Komið að stóru stundinni!
Heimsmeistaramót fatlaðra í frjálsum íþróttum stendur nú sem hæst á Ólympíuleikvanginum í London. Í kvöld er komið að stóru stundinni þegar Ármenningurinn Helgi Sveinsson mætir til spjótkastkeppninnar í flokki F42-44. Helgi keppir í þremur sameinuðum flokkum aflimaðra og þeirra með...
Helgi á leið til London á nýjan leik!
Spjótkastarinn Helgi Sveinsson hélt í morgun af stað á heimsmeistaramót fatlaðra í frjálsum sem fram fer á Ólympíuleikvanginum í London. Spjótkastkeppnin hjá Helga fer fram þann 18. júlí næstkomandi. Helgi snýr þar með aftur til London en hann keppti þar...
Eik með yfirburðasigur á Selfossi
Íslandsmót ÍF utanhúss í frjálsum íþróttum fór fram á Selfossi um helgina en mótið var haldið samhliða meistaramóti Frjálsíþróttasambands Íslands. Íþróttafélagið Eik frá Akureyri hafði öruggan sigur í stigakeppninni þar sem Kristófer Fannar Sigmarsson vann til sjö gullverðlauna, eitt silfur...
Íslandsmót ÍF í frjálsum á Selfossi 8. og 9. júlí
Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra fer fram á Selfossi dagana 8. og 9. júlí næstkomandi. Samkvæmt veðurspám má gera ráð fyrir góðum skilyrðum við mótið. Íslandsmót ÍF fer fram samhliða meistaramóti frjálsíþróttasambands Íslands.
Patrekur og Hulda með ný Íslandsmet í frjálsum
Frjálsíþróttafólkið Hulda Sigurjónsdóttir frá Suðra og Patrekur Andrés Axelsson frá Ármanni settu nýverið ný Íslandsmet í frjálsum þegar þau kepptu á Héraðsmóti fullorðinna hjá HSK sem fram fór á Selfossi dagana 27. og 28. júní síðastliðinn.