Fréttir

Síðasti skiladagur tilnefninga á mánudag

Síðasti skiladagur tilnefninga fyrir Norræna barna- og unglingamótið í Svíþjóð 2009 er næstkomandi mánudag þann 2. febrúar 2009. Þegar hafa nokkrar tilnefningar borist til ÍF en athygli er vakin á því að ekki verður gefinn lengri frestur en til mánudagsins...

Knattspyrnuæfingar fyrir fatlaða hjá KR

Fötluðum börnum og unglingum er nú gefið tækifæri á að vera virkir þátttakendur á æfingum hjá almennu knattspyrnufélagi. Íþróttasamband fatlaðra er umsjónaraðili starfsemi Special Olympics á Íslandi. Evrópusamtök Special Olympics og UEFA hafa byggt upp samstarf á sviði knattspyrnu fyrir...

Jóhann í 2. sæti á punktamóti Víkings

Borðtenniskappinn Jóhann Rúnar Kristjánsson, NES, hafnaði í 2. sæti í 1. flokki á punktamóti Víkings sem fram fór í TBR-húsinu um síðastliðna helgi. Jóhann var að keppa í flokki ófatlaðra þar sem hann mætti Vigni Kristmundssyni úr HK í úrslitum. Vignir...

Ganga og gaman

Átak, Fjölmennt, Ás styrktarfélag, Íþróttasamband fatlaðra, Hitt húsið, Öspin og Þroskahjálp hafa tekið saman höndum og stofnað gönguhóp. Markmiðið er að hittast einu sinni í mánuði og oftar með hækkandi sól, ganga í 20-30 mín. og fá sér smá hollustu...

Mætum öll á skautsýningu í Egilshöll kl. 18:15 laugardag 31. janúar

Katrín Guðrún Tryggvadóttir, mun keppa í Listhlaupi á skautum á Alþjóðaleikum Special Olympics sem fara fram í Boise iIdaho 7. - 13. febrúar 2009. Katrín Guðrún sem æfir hjá Skautafélaginu Birninum, mun sýna æfingar sínar á Þorramóti Bjarnarins sem...

Ragney Líf íþróttamaður ársins 2008 í Ísafjarðarbæ

Sundkonan Ragney Líf Stefánsdóttir var útnefnd íþróttamaður Ísafjarðarbæjar árið 2008. Ragney Líf er 16 ára og hefur æft sund hjá Íþróttafélaginu Ívari í níu ár. Á síðasta ári keppti hún á þremur stórum mótum; Malmö-open í Svíþjóð, Íslandsmóti ÍF í...

Æfingabúðir í sundi 30. janúar-1. febrúar í Laugardal

Um næstu helgi mun Sundnefnd ÍF standa að fyrstu æfingabúðum ársins fyrir æfingahóp landsliðs ÍF. Fimm aðildarfélög ÍF eiga sundmenn sem náð hafa lágmörkum fyrir búðirnar sem standa munu frá föstudeginum 30. janúar til sunnudagsins 1. febrúar. Æfingabúðirnar fara fram...

Golfæfingar fyrir hreyfihamlaða

Samkomulag hefur tekist á millum Golfsamtaka fatlaðra og Magnúsar Birgissonar um að hefja golfæfingar og kennslu fyrir hreyfihamlaða. Næsta miðvikudag, 28. janúar, kl. 17:00-18:00 verða æfingar í æfingastöð Golfklúbbs Keilis í Hafnarfirði. Nánari upplýsingar veitir Hörður Barðdal – hordur@ehp.is

Kynning á alþjóðlegu boccia-reglunum

Laugardaginn 24. janúar næstkomandi mun Guðbjörg Kristín Eiríksdóttir standa að kynningu og gegnumferð á alþjóðlegu boccia-reglunum fyrir hönd Stanislavs Doskocil. Stanislav hefur full réttindi sem alþjóðlegur dómari og hefur kynnt sér stöðu og áherslur í boccia hér á Íslandi það...

Katrín opnar Þorramót Bjarnarins

Skautadrottningin Katrín Guðrún Tryggvadóttir mun opna Þorramót Bjarnarins dagana 30.-31. janúar næstkomandi með því að sýna skautaæfingar sínar fyrir Special Olympics 2009. Katrín er á leið til Idaho í Bandaríkjunum þar sem hún mun taka þátt í Alþjóða...

Danir gerðu góða ferð á RIG mótið

Reykjavík International Games fóru fram í Reykjavík um síðastliðna helgi þar sem fatlaðir tóku þátt í fyrsta sinn. Fatlaðir kepptu aðeins með í sundi en vonir standa til þess að keppt verði í fleiri íþróttagreinum í framtíðinni á þessu stóra...

Jólafundur Suðra

Íþróttafélagið Suðri afhenti sjálfboðaliðakort ÍF á jólafundi Suðra.Á myndinni má sjá þá sem fengu fyrstu kortin afhend en þau eru; Aftari röð frá vinstri: Hulda Sigurjónsdóttir, Sigríður Sigurjónsdóttir og María Sigurjónsdóttir. Fyrir framan Svanur Ingvarsson Auk þess að keppa með...

Skíðanámskeið ÍF og VMÍ í samstarfi við Winter Park

Hlíðarfjalli, Akureyri 13.-15. febrúar 2009 Föstudagur 13. febrúar;     Kl. 12:30: Mæting í Hlíðarfjall. Kynning á útbúnaði og  ráðgjöf  fyrir skíðakennara, starfsfólk skíðasvæða, þá sem koma á einn eða annan hátt að fötluðum og aðra þá sem áhuga hafa á að...

Lífshlaupið: Skráning hefst 20. janúar

Íþróttasamband fatlaðra hvetur aðildarfélög ÍF og fólk sem starfar að málefnum fatlaðra til að kynna sér verkefnið "Lífshlaupið" sem er hvatningar og átaksverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Jafnt einstaklingar sem hópar geta tekið þátt og viðurkenning er veitt fyrir góðan árangur....

Fatlaðir með í fyrsta sinn á RIG mótinu

Búist er við fjölda gesta og keppenda á Reykjavík International Games sem fram fara í Reykjavík um næstu helgi, dagana 16.-18. janúar. Keppt er í fjölda íþróttagreina og nú í fyrsta sinn í sögu RIG mótsins munu fatlaðir íþróttamenn taka...

Sjálfstætt líf með aðstoð tækninnar

Fimmtudaginn 29. janúar 2009 kl. 16.00 - 17.30 heldur Arne Lykke Larsen fyrilestur um Sjálfstætt líf með aðstoð tækninnar í stofu 102 á Háskólatorgi í Háskóla Íslands. Í fyrirlestrinum fjallar Arne Lykke um notendastýrða þjónustu í Danmörku og hvernig hún...

Knattspyrnuæfingar fyrir fatlaða hjá KR

Fötluðum börnum og unglinum gefið tækifæri á að vera virkir þátttakendur á æfingum hjá almennu knattspyrnufélagi. Á næstunni verður hleypt af stokkunum knattspyrnuæfingum fyrir fatlaða hjá KR og munu þeir kynna verkefnið á næstunni og æfingar hefjast í kjölfarið. Markmiðið er...

Mikilvægt að halda óbreyttri starfsemi

Ég vil byrja á að óska öllum gleðilegs árs og friðar og þakka fyrir árið 2008 sem nú er ný liðið. Mikilvægi íþrótta þarf ekki að útskýra fyrir neinum en þó má með sanni segja að í því ástandi sem nú...

Jón Margeir sá fjórði úr Ösp sem vinnur Sjómannabikarinn

Nýárssundmót fatlaðra barna og unglinga fór fram í innilauginni í Laugardal þann 4. janúar síðastliðinn þar sem Jón Margeir Sverrisson sundmaður frá Ösp hampaði Sjómannabikarnum fyrir besta afrek mótsins. Jón Margeir synti...

Knattspyrnuæfingar fatlaðra á Akranesi

Samstarfsverkefni KSÍ, ÍA og Þjóts Næstkomandi laugardag hefjast knattspyrnuæfingar fyrir fatlaðra á Akranesi og fara þær fram í íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum.  Þessar æfingar eru samstarfsverkefni á milli Knattspyrnusambands Íslands, ÍA og Þjóts sem er íþróttafélag fatlaðra á Akranesi. Æfingarnar verða á hverjum...