Fréttir

Myndasafn: Íslandsmót ÍF í 25m. laug

Nú er komið inn á myndasíðu ÍF veglegt myndasafn frá Íslandsmótinu í 25m. laug sem fram fór í Laugardal dagana 29.-30. nóvember síðastliðinn. Smellið á tengilinn til að komast beint í safnið - http://album.123.is/?aid=126552

Líf og fjör í Laugardal

Nóg er um að vera í Laugardal þessa stundina en laust eftir hádegi lauk Opna Reykjavíkurmótinu í frjálsum þar sem glæst tilþrif litu dagsins ljós. Mótið var haldið á vegum Asparinnar í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal og á meðfylgjandi mynd má...

Sportið mitt nýr sjónvarpsþáttur á ÍNN í kvöld

Núna í kvöld kl 21:00 hefst sportþátturinn SPORTIÐ MITT sem verður um allar íþróttir. Þátturinn verður í umsjón Sverris Júll og Sigurðar Inga Vilhjálmssonar. Í hverjum þætti verður tekin fyrir ein íþróttagrein en í fyrsta þættinum  sem verður á Föstudaginn...

Fjármálaráðstefna ÍSÍ

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur fyrir fjármálaráðstefnu föstudaginn 28. nóvember nk. kl. 13-16 í Laugardalshöll. Ráðstefnustjóri verður Stefán Konráðsson framkvæmdastjóri Íslenskrar getspár. Dagskrá verður eftirfarandi: 13:00 Setning – Ólafur Rafnsson, forseti ÍSÍ13:10 Ávarp Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra13:20 Rekstur íþróttahreyfingarinnar – Gunnar Bragason,...

Aðalfundur INAS-FID Evrópu: Þórður varaformaður

Dagana 22. - 23. nóvember sl fór fram í Gävle í Svíþjóð aðalfundur Evrópudeildar INAS-Fid (Alþjóðahreyfingar þroskaheftra íþróttamanna). Fulltrúar Íslands á fundinum voru þeir Þórður Árni Hjaltested, ritari stjórnar ÍF og stjórnarmaður Evrópudeildar INAS-Fid og Ólafur Magnússon, framkvæmdastjóri fjármala og...

Amanda Boxtel - ótrúleg baráttukona -

Árið 2001 kom Amanda Boxtel til Íslands ásamt skíðakennurum frá Challenge Aspen en ÍF og VMÍ hófu samstarf við Challenge Aspen í þeim tilgangi að efla vetraríþróttir fatlaðra á Íslandi. Amanda lamaðist í skíðaslysi og hefur verið í hjólastól...

Kristín Rós gefur út bók: ÍF fékk fyrsta eintakið

Sunddrottningin Kristín Rós Hákonardóttir gaf nýverið út sína fyrstu bók og í dag kom hún færandi hendi og afhenti Íþróttasambandi fatlaðra fyrsta eintakið beint úr prentsmiðju. Bókin heitir: Kristín Rós Meistari í nærmynd. Það var Ólafur Magnússon framkvæmdastjóri afreks- og...

Ráðstefna Special Olympics á Kýpur

Guðlaugur Gunnarsson sótti ráðstefnuna á dögunum [frétt af ksi.is] Á dögunum var haldin ráðstefna á vegum Special Olympics á Kýpur en ráðstefnan var haldin í tengslum við Smáþjóðaleika Special Olypics í knattspyrnu. Guðlaugur Gunnarsson, starfsmaður KSÍ, sótti ráðstefnuna fyrir hönd...

Alþjóðavetrarleikar Special Olympics Idaho 2009

Íþróttasamband Fatlaðra sem er umsjónaraðili Special Olympics á Íslandi sendir 1 keppanda á alþjóðaleika Special Olympics sem haldnir verða Boise, Idaho, USA dagana 7. – 13. febrúar 2009.Fyrstu íslensku keppendurnir í listhlaupi á skautum á leikum Special Olympics voru Stefán...

Afreksráðstefna ÍF

Þann 8. nóvember sl. stóð Ólympíu- og afreksráð Íþróttasambands fatlaðra fyrir ráðstefnu um stefnumörkun afreksíþrótta fatlaðra og afreksstefnu ÍF 2008 – 2012. Um afreksstefnu ÍF segir að hún sé stefnumótandi ákvörðun æðstu forystu Íþróttasambands fatlaðra og er líkt og...

Kynningarfundur um nýjar lyfjareglur

Nýverið var haldinn kynningarfundur á vegum Lyfjaráðs og Lyfjaeftirlitsnefndar ÍSÍ. Til fundarins voru boðuð sérsambönd og sérgreinanefndir. Aðal umfjöllunarefnið var nýjar alþjóða lyfjareglur sem taka gildi nú um áramót og hvaða áhrif þær hafa á lyfjaeftirlitið. Nánar

Evrópuráðsfundur EEAC og Evrópuráðstefna Special Olympics 2008

Evrópuráðsfundur EEAC Búkarest Rúmeníu, 12. –13. nóvember 2008 Dagana 12. – 14. nóvember var haldinn í Búkarest fundur Evrópuráðs Special Olympics (EEAC). Fundurinn var haldin í tengslum við Evrópuráðstefnu SOE. Nánar Mynd: Anna Karólína Vilhjálmsdóttir, Íslandi, Galina Dzyurych Belarus og Boguslaw Galazka, Póllandi...

Opna Reykjavíkurmótið í frjálsum íþróttum

Opna Reykjavikurmótið i frjálsum íþróttum verður haldið í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal laugardaginn 29. nóvember n.k. en framkvæmdaaðili mótsins er íþróttafélagið Ösp. Upphitun hefst kl. 9:00 og keppni stundvíslega kl. 10:00. Greinar sem í boði verða eru: 60m hlaup, 200m hlaup,...

Opin æfing í borðtennis hjá Íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík

Laugardaginn 15. nóvember kl. 13.50 - 15.30Íþróttahúsi ÍFR, Hátúni 12 Hvatning til einstaklinga og aðstandenda að nýta þetta tækifæri Íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík (ÍFR) hefur ákveðið að bjóða upp á opna æfingu í borðtennis fyrir þá sem vilja koma og...

Íslandsmót ÍF í sundi

Íslandsmót ÍF í sundi í 25 m braut fer fram í Sundlaug Laugardals 29. og 30. nóvember nk.  Sjá nánar dagskrá og greinar mótsins

Samstarf við Sérsambönd ÍSÍ

Íþróttasamband Fatlaðra hefur það að markmiði að auka enn frekar samstarf við Sérsambönd ÍSÍ.Ýmis samstarfsverkefni verið þróuð með góðum árangri en sum verkefni hafa ekki skilað þeim árangri sem stefnt var að og nýjar greinar ekki náð að festast í...

Jólakort IF 2008

Jólakort ÍF er hannað af Camillu Th. Hallgrímsson, varaformanni ÍF. Íþróttasamband Fatlaðra gefur aðildarfélögum sínum 1000 jólakort og þau félög sem þess óska fá kort á kostnaðarverði.  Sala jólakorta ÍF er ein aðalfjáröflun félaganna.

Dagskrá afreksráðstefnu ÍF 2008

Afreksráðstefna ÍF Ólympíu- og afreksráð Íþróttasambands fatlaðra stendur fyrir ráðstefnu um stefnumörkun afreksíþrótta fatlaðra og afreksstefnu ÍF 2008 – 2012. Til afreksráðstefnunnar er boðið formönnum aðildarfélaga ÍF, þjálfurum, landsliðsþjálfurum ÍF, fulltrúum íþróttanefnda og stjórnarfólki ÍF. Umsjón með ráðstefnunni og aðalfyrirlesarar...

Íslandsmótið í boccia hjá RÚV

RÚV lét sig ekki vanta í Laugardalshöll um síðustu helgi þegar Íslandsmótið í einliðaleik í boccia fór fram. Rúmlega 200 keppendur tóku þátt á mótinu sem tókst vel til í alla staði enda þaulvant fólk á ferðinni hjá Ösp sem...

Íslandsmótið í boccia í einliðaleik í Laugardalshöll

Rúmlega 200 manns frá 15 aðildarfélögum ÍF tóku þátt í Íslandsmótinu í einliðaleik í boccia sem fram fór í Laugardalshöll. Sú hefð hefur skapast að aðildarfélög ÍF eru framkvæmdaraðilar þessa Íslandsmóts en tilgangur þess er m.a. að kynna starfsemi...