Fyrstu Íslandsleikar Special Olympics í keilu fara fram dagana 23. og 24. maí í Keiluhöllinni í Egilshöll.
Laufey Sigurðardóttir þjálfari keiludeildar Aspar hefur haft veg og vanda að undirbúningi og skipulagi í samstarfi við Special Olympics á Íslandi.
Spilaðir verða 4 leikir yfir tvo daga. Keppni mun standa báða dagana frá 16:50 til 18:50. Mæting að lágmarki 15 mínútum fyrir keppni.
Verðlaunaafhending fer fram strax að keppni lokinni eftir seinni daginn. Öllu ætti að vera lokið um 19:30.
Skráning fer fram í tölvupósti á keiludeildin@gmail.com Skila þarf inn skráningum fyrir 17. maí
Reglugerð um Íslandsleika SO
1. grein Íslandsleika SO skal haldið árlega.
2. grein Keppt skal í karla og kvenna flokkum. Til að hafa þátttökurétt í Íslandsleikum SO þarf viðkomandi að vera skráður sem fatlaður hjá því keilufélagi sem viðkomandi er skráður í.
3. grein Leiknir eru 4 leikir sem skiptast í 2 leiki á fyrri degi og 2 á seinni keppnisdegi. 2 leikir á sömu braut.
4. grein Ef skera þarf úr um jafntefli í sætaröðun þá skal síðasti leikur látinn gilda þ.e. sá/sú sem er með hærri leik hlýtur efra sætið. Ef hann er jafn hár þá er farið í næsta leik þar á undan og síðan koll af kolli.
5. grein Úrslit liggja fyrir að leik loknum