Fyrsta bikarkeppni Íþróttasambands fatlaðra í Para-borðtennis fer fram í íþróttahúsi ÍFR laugardaginn 3. október næstkomandi. Stjórn ÍF samþykkti nýverið nýja reglugerð um bikarkeppnina og nú styttist óðfluga í að keppnin fari fram.
Um er að ræða liðakeppni með útsláttarfyrirkomulagi en hvert lið skal vera skipað að lágmarki tveimur leikmönnum. Keppnisrétt hafa leikmenn í fötlunarflokkum 1-11.
Skráning á mótið fer fram á ifbordtennis@gmail.com og er skráningarfrestur til mánudagsins 28. september kl. 20.00.










