Skráning er hafin á Íslandsmót ÍF í einstaklingskeppni í boccia sem fram fer á Selfossi í októberlok (31.október-1.nóvember).
Skráningarfrestur er til 12. október og skráningum skal skila til kallith@simnet.is með cc á if@ifsport.is
Félög sem hafa ekki fengið skráningarformin send til sín geta óskað eftir gögnum á if@ifsport.is
Í ár fer mótið fram á Selfossi í tilefni af 30 ára afmæli Íþróttafélagsins Suðra og hafa Suðramenn þegar lagt mikið í undirbúning mótsins. Von er á frábærri keppni á Selfossi og stórskemmtilegu lokahófi sunnudagskvöldið 1. nóvember.










