Í dag var staðfestur samningur við Magnús Orra Arnarson sem felur í sér að hann mun vinna kynningarmyndbönd vegna heimsleika Special Olympics í Berlín 2023.
Hann vinnur verkefnið fyrir Special Olympics á Íslandi og ÍF en samstarf við Magnús Orra hófst árið 2019 og hefur verið mjög ánægjulegt, enda mikill fagmaður.
Verkefnið felur í sér að hann mun heimsækja keppendur á æfingar og sýnt verður frá hverri heimsókn.
Íslenskir keppendur taka þátt í 10 greinum á leikunum og hann mun vinna heildarkynningarmyndband með öllum greinum áður en leikarnir hefjast.
Special Olympics á Íslandi og Íþróttasamband fatlaðra fagna samstarfi við Magnús Orra og hann mun koma að fleiri verkefnum í vetur, m.a. Paralympicsdeginum 3. desember
Á myndinni er Anna Karólína Vilhjálmsdóttir, framkvæmdastjóri Special Olympics á Íslandi og Magnús Orri þegar samningurinn var staðfestur í dag.