FARSÆLT SAMFÉLAG FYRIR ALLA Ráðstefna um íþróttir barna og ungmenna fimmtudag 7. april á Hótel Hilton


Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið í samvinnu við mennta- og barnamálaráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið stendur fyrir ráðstefnu á Hótel Hilton 7. apríl kl. 9-15:30 undir yfirskriftinni Farsælt samfélag fyrir alla – tækifæri barna og ungmenna í íþróttastarfi. Á ráðstefnunni verður leitast við að koma auga á þær áskoranir sem við enn stöndum frammi fyrir þegar kemur að jöfnum tækifærum allra barna til íþróttaiðkunar. Þá munu fulltrúar notenda, íþróttafélaga, íþróttasambanda, þjónustukerfi ríkis og sveitarfélaga vinna saman að mótun tillagna að aðgerðaáætlun um fulla þátttöku og virkni fatlaðs fólks á forsendum eigin getu.

Ráðstefnan er öllum opin og þátttaka er gjaldfrjáls. Hér er linkur á dagskrá og skráningarform; https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2022/03/15/Farsaelt-samfelag-fyrir-alla-radstefna-um-taekifaeri-barna-og-ungmenna-i-ithrottastarfi/