Róbert Ísak með nýtt Íslandsmet í baksundi


Sundmaðurinn Róbert Ísak Jónsson, SH/Fjörður, setti í morgun nýtt Íslandsmet í 100m baksundi S14 (þroskahamlaðir) á Evrópumeistaramóti IPC í sundi. Mótið fer fram í Madeira í Portúgal og verður Róbert því í úrslitum kvöldsins ásamt Má Gunnarssyni sem keppir í beinum úrslitum í 100m flugsundi S11.


Ríkjandi met sem var 1:06.49 mín. var í eigu Róberts frá árinu 2019 en það setti hann á Grand Prix mótaröð IPC í Lignano á Ítalíu. Í morgun í undanrásum synti Róbert á 1:05.19 mín. og bætti því gamla metið sitt um rúma sekúndu!


Hægt er að fylgjast með mótinu í beinni á Facebook-síðu ÍF.

 

Mynd/ Pedro Moreira – Róbert Ísak Jónsson setti nýtt Íslandsmet í undanrásum í 100m baksundi í dag.