Skráning hafin
Hinar árlegu sumarbúðir Íþróttasambands fatlaðra að Laugarvatni fagna 30 ára afmæli sínu í ár! Nú er opið fyrir skráningu í búðirnar en sem fyrr verður boðið upp á tvö vikulöng námskeið.
Fyrra námskeiðið er vikuna 17.-24. júní en það seinna 24. júní-1. júlí.
Umsóknareyðublað fyrir búðirnar má nálgast hér.
Nánari upplýsingar má finna í meðfylgjandi mynd hér að neðan sem og á Facebook-síðu Sumarbúðanna.