Dagana 11.-13. mars næstkomandi fer Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra fram í Reykjanesbæ. Að þessu sinni verður keppt í boccia, sundi og lyftingum. Keppni í frjálsum íþróttum fer fram núna í febrúarmánuði og keppni í borðtennis fer fram í aprílmánuði.
Skráningargögn vegna mótsins 11.-13. mars hafa þegar verið send út til aðildarfélaga Íþróttasambands fatlaðra. Þá sem vanhagar um skráningargögn geta haft samband við skrifstofu á if@ifsport.is eða í síma 5144080.
Dagskrá Íslandsmóts ÍF 2016;
Frjálsar íþróttir Tengt meistaramóti FRÍ 20. - 21. febrúar í Laugardalshöll
Umsjón; frjálsíþróttanefnd ÍF
Boccia Íþróttahúsið Sunnubraut & Heiðarskóli
Laugardagur 12. mars Fararstjórafundur kl. 10.00
Dómarafundur í kjölfar fararstjórafundar
Mótssetning kl. 10.30
Keppni hefst kl. 11.00
Sunnudagur 13. mars Keppni hefst kl. 11.00
Umsjón; Boccianefnd ÍF í samvinnu við NES
Lyftingar
Sunnudagur 13. mars Vigtun kl. 11.00
Keppni hefst kl. 13.00 Aðstaða Massa
Umsjón; MASSI í samvinnu við NES
Sund Vatnaveröld, Reykjanesbæ
Laugardagur – upphitun 13.00 Keppni hefst kl. 14.00
Sunnudagur – upphitun 0900 Keppni hefst kl. 10.00
Umsjón; Sundnefnd ÍF í samvinnu við NES
Borðtennis
Grindavík 23. apríl - Nánari tímasetning staðfest síðar
Umsjón; Borðtennisnefnd ÍF í samvinnu við NES