Fimmtudagur. 22 október 2015
Helgi fánaberi í Doha - Íslandsmet Arnars stóð af sér áhlaupið
Heimsmeistaramót fatlaðra í frjálsum íþróttum er hafið í Doha í Katar. Keppni hófst í morgun en setningarathöfn mótsins fór fram í gærkvöldi þar sem spjótkastarinn Helgi Sveinsson úr Ármanni var fánaberi Íslands við athöfnina.
Arnar Helgi Lárusson reið svo á vaðið í morgun í 100m hjólastólarace og gerði þar heiðarlega atlöguð að ríkjandi Íslandsmeti sínu en það vildi ekki falla. Íslandsmet Arnars í greininni er 17,77 sekúndur en Arnar kom í mark í dag á tímanum 17,79 sek. og varð áttundi í sínum riðli, vindur var -0,6 á móti.
Arnar á eftir keppni í 200 og 400m race, 200m race fer fram á sunnudag og 400m race á þriðjudag og Ísland lýkur svo þátttöku sinni í mótinu þegar Helgi Sveinsson keppir í spjótkasti þann 30. október.
Úrslit í 100m race hjá Arnari (undanrásir - riðill nr. 1)
ace ResultsWind -0.6 |
Rank | Bib | Name | Reaction Time | Fn | Result |
|
|
|
|
|
|
---|
1 | 1527 | |
|
| 15.37 |
| Q |
|
|
|
|
2 | 1313 | |
|
| 15.64 |
| Q |
|
|
|
|
3 | 2381 | |
|
| 15.71 |
| Q |
|
|
|
|
4 | 2378 | |
|
| 16.36 |
| q |
|
|
|
|
5 | 2231 | |
|
| 16.75 |
|
|
|
|
|
|
6 | 2339 | |
|
| 17.09 |
|
|
|
|
|
|
7 | 2528 | |
|
| 17.12 |
|
|
|
|
|
|
8 | 1748 | |
|
| 17.79 |
|
Mynd/ Stefán Þór Borgþórsson - Arnar Helgi t.v. og Helgi Sveinsson t.h.