Norðurlandamót fatlaðra í sundi hefst í Bergen í Noregi í dag. Ísland valdi 11 keppendur til þátttöku í mótinu en Kolbrún Alda Stefánsdóttir forfallaðist á síðustu stundu vegna meiðsla og því eru 10 íslenskir sundmenn mættir ytra.
Hægt verður að fylgjast með úrslitum mótsins í beinni úrslitaþjónustu þeirra Norðmanna hér.
Þá er hópurinn með stjórn á Snapchat-reikningi ÍF og sýnir frá ævintýrum sínum ytra á: ifsport
Sundhópur Íslands á NM í Noregi
Aníta Ósk Hrafnsdóttir Breiðablik/ Fjörður
Róbert Ísak Jónsson Fjörður
Sandra Sif Gunnarsdóttir Fjölnir
Thelma Björg Björnsdóttir ÍFR
Sonja Sigurðardóttir ÍFR
Guðmundur Hákon Hermannsson KR
Marinó Ingi Adolfsson ÍFR
Már Gunnarsson Nes/ÍRB
Róbert Reynisson Nes/ÍRB
Hjörtur Már Ingvarsson Fjörður
Með hópnum ytra eru landsliðsþjálfararnir Kristín Guðmundsdóttir og Ingi Þór Einarsson og Þór Jónsson formaður sundnefndar ÍF sér um fararstjórn.
Mynd/ Hjörtur Már Ingvarsson, Fjörður, er einn þeirra 10 sundmanna sem keppa fyrir Íslands hönd á NM í Bergen.