Josh Blue í Háskólabíói 4. september




Josh Blue mætir í Háskólabíó föstudaginn 4.september! Þessi magnaði grínisti sem er með CP (Cerebral Palsy) sigraði NBC´s Last Comic Standing og hefur síðan þá ferðast um allan heim og tryllt fjölda fólks með óviðjafnanlegu uppistandi.

Josh var fyrsti uppistandarinn til að skemmta í sjónvarpsþætti Ellen DeGeneres og er reglulegur gestur í Mind of Mencia á Comedy Central. Þetta verður svo sannarlega brjálæðislega skemmtilegur viðburður! Miðasala er hafin á midi.is - fylgist einnig vel með á Facebook síðu Komedy og á www.komedy.is