Kolbrún sjöunda í bringusundi


i
Jón og Thelma komust ekki í úrslit

Fyrsta keppnisdegi á HM í sundi fatlaðra sem fram fer í Glasgow í Skotlandi er nú lokið hjá íslensku keppendunum. Kolbrún Alda Stefánsdóttir, Fjörður/SH, komst í úrslit í 100m bringusundi en í undanrásum synti hún á 1:27,66 mín. og í úrslitum varð hún sjöunda á 1:25,59 mín. en Íslandsmet hennar í greininni er 1:24,14 mín. frá því í Eindhoven í Hollandi 2014.
Þau Jón Margeir Sverrisson, Fjölnir, og Thelma Björg Björnsdóttir, ÍFR, kepptu bæði í dag en máttu fella sig við að komast ekki í úrslit þennan daginn. Jón keppti í 100m bringusundi en Thelma í 400m skriðsundi.

Niðurstaða dagsins hjá íslenska sundfólkinu:

100m bringusund - S14 (þroskahamalaðir)

Kolbrún Alda Stefánsdóttir - 1:27,66mín. (komst í úrslit)
Úrslit: Kolbrún synti á 1:25,59 mín. og hafnaði í 7. sæti.

100m bringusund - S14 (þroskahamlaðir)
Jón Margeir Sverrisson - 1:14,26 mín. (komst ekki í úrslit)
Ríkjandi Íslandsmet Jóns er 1:13,81 mín.

400m skriðsund - S6 (hreyfihamlaðir)
Thelma Björg Björnsdóttir - 6:14,31 mín. (komst ekki í úrslit)
Ríkjandi Íslandsmet Thelmu í greininni er 6:03,67 mín.

Mynd/ Kolbrún Alda Stefánsdóttir varð sjöunda í 100m bringusundi á HM í dag.