Nú stefnir öflugur hópur á Special Olympics í Los Angeles í sumar. Leikarnir eru fyrir einstaklinga með þroskahömlun og eru haldnir fjórða hvert
ár. Við tölum um öruggan sigur því hver og einn þátttakandi sigrast á sjálfum sér með því að efla líkamsstyrk og félagslega færni og eignast minningar sem
endast ævina. Því bjóðum við þér nú að vera með í sigurliðinu.
Fjölmargir Íslendingar hafa átt þess kost að taka þátt frá því að Íþróttasamband fatlaðra gerðist aðili að alþjóðasamtökum Special Olympics árið 1989. Nú hafa
41 keppandi víða að af landinu verið valdir til þátttöku í badminton, boccia,fimleikum, frjálsum íþróttum, golfi, keilu, lyftingum, knattspyrnu og sundi.
Allir eiga sömu möguleika á verðlaunum, jafnt þeir sterkustu sem þeir veikustu.
Við leitum nú til þín um hjálp til að ferja okkar fólk á leikana í Los Angeles. Hver króna skiptir máli og tekur ÍF við frjálsum framlögum - þú getur styrkt
þátttöku Íslands í Los Angeles með þínu frjálsa framlagi með því að leggja inn á reikning okkar, banki: 313 hb: 26, reikningur: 4394 kt: 620579-0259
Íþróttasamband fatlaðra