Fjórir á leið á HM í sundi



Heimsmeistaramót fatlaðra í sundi fer fram í Glasgow í Skotlandi dagana 13.-19. júlí næstkomandi. Ísland mun tefla fram fjórum sundmönnum á mótinu að þessu sinni.
 
Sundmenn Íslands á mótinu:
 
Jón Margeir Sverrisson - S14 - Fjölnir
Kolbrún Alda Stefánsdóttir - S14 - Fjörður/SH
Thelma Björg Björnsdóttir - S6 - ÍFR
Sonja Sigurðardóttir - S4 - ÍFR

Mynd/ Sverrir Gíslason - Thelma Björg sem setti þrjú ný Íslandsmet á bikarmótinu um síðustu helgi verður á meðal fulltrúa Íslands á HM fatlaðra í sundi í júlímánuði.