Frjálsíþróttafólk úr röðum fatlaðra hefur farið vel af stað árið 2015 en metin sem fallið hafa eru orðin átján talsins þetta árið! Á dögunum lönduðu þau Helgi Sveinsson og Hulda Sigurjónsdóttir tveimur nýjum Íslandsmetum. Helgi í spjótkasti í flokki F42 og Hulda í kúluvarpi í flokki F20.
Helgi kastaði spjótinu 52,69m. sem er nýtt Íslandsmet og aðeins tíu sentimetra frá heimsmeti Kínverjans Fu Yanlong en heimsmetið hefur staðið síðan á Paralympics í London 2012. Evrópumetið er svo aðeins í fimm sentimetra fjarlægð en það á Daninn Jakob Mathiasen og hefur Evrópumetið staðið síðan í Sydney 2000 og er 52,74m.
Heimsmet: Yanlong Fu, Kína - 52,79m - London Paralympics 2012
Evrópumet: Jakob Mathiasen, Danmörk - 52,74m - Sydney Paralympics 2000.
Hulda setti líka nýtt Íslandsmet en þau Helgi kepptu á Vormóti HSK og þá kastaði Hulda 9,72m í kúluvarpi.
Eftirtaldir hafa sett Íslandsmet í frjálsum það sem af er árinu:
Stefanía Daney Guðmundsdóttir, Eik - 7 Íslandsmet
Hulda Sigurjónsdóttir, Suðri - 6 Íslandsmet
Arnar Helgi Lárusson - 2 Íslandsmet
Patrekur Andrés Axelsson - 2 Íslandsmet
Helgi Sveinsson, Ármann - 1 Íslandsmet
Í kvöld mun Helgi svo reyna við sjálft heimsmetið á JJ móti Ármanns í kvöld:
http://www.mbl.is/sport/frettir/2015/05/20/reynir_vid_heimsmet_a_laugardalsvellinum/