500 dagar í Paralympics 2016


Sunnudaginn 26. apríl voru 500 dagar þangað til Paralympics í Rio 2016 verða settir við hátíðlega athöfn í borginni. Alþjóðaólympíuhreyfing fatlaðra (IPC) gerir ráð fyrir að Paralympics 2016 muni brjóta öll met í sjónvarpsáhorfi.
 
Gert er ráð fyrir rúmlega 4000 íþróttamönnum frá um 170 löndum á Paralympics í Ríó sem keppa munu í 22 íþróttagreinum dagana 7.-18. september 2016.
 
Sir Philip Craven forseti IPC sagði við 500 daga markið að þegar hafi fleiri útsendingaraðilar tryggt sér sjónvarpsréttinn heldur en á sama tíma fyrir Paralympics í London 2012. Í gær fór einnig fram mikil danshátíð við Copcabana ströndina í Ríó en um leið og dansinn hófst gerði mikla rigningu, viðstaddir gerðu að því orð að rigningin væri afar velkomin enda í anda markmiða Paralympics, að yfirstíga hindranir.
 
Paralympics í Rio 2016 verða sögulegir því í fyrsta sinn munu leikarnir fara fram í Suður-Ameríku. Í London 2012 átti Ísland fjóra fulltrúa en þeir voru Jón Margeir Sverrisson, Helgi Sveinsson, Matthildur Ylfa Þorseinsdóttir og Kolbrún Alda Stefánsdóttir. Síðustu leikar höfðu í för með sér ein gullverðlaun þar sem Jón Margeir Sverrisson landaði gulli í 200m skriðsundi sem um leið var nýtt Heimsmet, Evrópumet, Paralympic-met og að sjálfsögðu Íslandsmet.
 
Þó vissulega hafi margir íslenskir íþróttamenn sett stefnuna á Rio 2016 eru enn stór verkefni fyrir höndum og má þar helst nefna Heimsmeistaramótið í sundi í Glasgow í sumar og Heimsmeistaramótið í frjálsum í Doha í Katar í haust. Það ræðst ekki fyrr en á vormánuðum 2016 hver endanlegur hópur Íslands í Brasilíu 2016 verður.

Mynd/ IPC - Frá Copcabana ströndinni í gær.