Opna þýska meistaramótinu í sundi er lokið þar sem Fjölnismaðurinn Jón Margeir Sverrisson fór mikinn. Jón Margeir tók sig til og setti tvö ný heimsmet á mótinu! Síðastliðinn fimmtudag setti Jón stórglæsilegt heimsmet í 200m skriðsundi í flokki S14 og um helgina setti hann annað heimsmet þegar hann synti 400m skriðsund á 4:13,70mín. Magnað afrek hjá kappanum sem er í fantaformi. Alls féllu sjö Íslandsmet hjá Jóni þessa helgina og tvö ný heimsmet litu dagsins ljós.
Thelma B. Björnsdóttir, ÍFR, var einnig á meðal keppenda á mótinu og setti hún fimm ný Íslandsmet en við gerum metunum öllum betri skil á næstunni.
Mynd/ Sverrir Gíslason - Jón Margeir á verðlaunapalli á opna þýska meistaramótinu um síðstu helgi.