Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra hófst í gærkvöldi í Kaplakrika en mótið er í samstarfi ÍF og Íþróttafélagsins Fjarðar. Fyrsta keppnisgrein á dagskrá var venju samkvæmt Íslandsmótið í frjálsum íþróttum og þar mættu íþróttamenn klárir í slaginn því um metaregn var að ræða!
Alls tíu Íslandsmet litu dagsins ljós hjá frjálsíþróttafólkinu þar sem Akureyrarmærin Stefanía Daney Guðmundsdóttir setti fimm ný met í flokki 20 (þroskahamlaðir).
Stefanía setti nýtt Íslandsmet í 60m hlaupi er hún kom í mark á 9,05 sek. og þá var um nýtt Íslandsmet að ræða hjá henni í 200m hlaupi á tímanum 30,69 sek. Í langstökki fór Stefanía 4,47m og í hástökki 1,25m. Glæsilegur árangur hjá Stefaníu sem keppir fyrir Eik á Akureyri.
Hinn 21 árs gamli Patrekur Andrés Axelsson, Ármanni, sem hefur nýlega hafið keppni í frjálsum íþróttum eftir að hann missti sjónina sett tvö ný Íslandsmet í flokki 12 (sjónskertir). Patrekur hljóp 60 metrana á 8,24 sek. og stökk 3,46 metra í langstökki.
Þá bætti Arnar Helgi tvö Íslandsmet sem hann sjálfur átti fyrir í hjólastólakappakstri (e. wheelchairracing) en hann kom í mark á 13,31 sek. í 60m. spretti og var 36,32 sek. í 200m. spretti í spánnýjum racer-hjólastól sem hann smíðaði nýverið sjálfur!
Hulda Sigurjónsdóttir, Suðri, bætti svo eigið met í kúluvarpi í flokki 20 þegar hún varpaði kúlunni 9,51 metra.
Eins var góð þáttaka í keppni 13 ára og yngri á frjálsíþróttamótinu og ljóst að öflugir ungir iðkendur eru á leiðinni sem ætla að láta vel að sér kveða í framtíðinni.
Glæsilegt byrjun á Íslandsmótinu en nú í morgunsárið var keppni í boccia sett í aðalsal Kaplakrika og mun keppnin standa fram til morgundagsins. Keppni í borðtennis er einnig hafin í íþróttahúsinu að Hátúni í Reykjavík og þá hefst keppni í lyftingum kl. 13:00 í lyftingasal Kaplakrika.
Mynd/ Jón Björn - Stefanía Daney Guðmundsdóttir á ferðinni í 200m. hlaupi en hún setti fimm ný Íslandsmet í Kaplakrika síðastliðið föstudagskvöld.