Jóhann Þór Hólmgrímsson, Akur, hefur lokið sinni fyrstu grein á heimsmeistaramóti fatlaðra í alpagreinum sem nú stendur yfir í Panorama í Kanada. Jóhann hafnaði í nítjánda sæti í stórsvigi í sitjandi flokki og varð þar með fyrstu íslenskra karlmanna til að bæði taka þátt á HM í alpagreinum sem og að ljúka keppni.
Jóhann varð í 21. sæti eftir fyrri ferð í dag, sjö keyrðu úr braut eða luku ekki keppni af öðrum ástæðum. Jóhann kom í mark á tímanum 1:24.63 mín. og varð í 21. sæti. Í seinni ferðinni stórbætti Jóhann tímann sinn og varð nítjandi á 1:16.86 mín. Fleiri féllu úr leik í seinni ferðinni og varð Jóhann nítjándi og síðastur þeirra sem luku keppni í dag.
Flottur árangur hjá Jóhanni á sínu fyrsta heimsmeistaramóti en hann verður aftur á ferðinni næsta þriðjudag þegar hann keppir í svigi á síðasta keppnisdegi mótsins.
Hér er hægt að sjá fyrri ferð Jóhanns í dag (hefst á 2:28,51)
Hér er hægt að sjá seinni ferð Jóhanns í dag (hefst á 2:01,08)