Leonard afhenti veglegan styrk eftir sölu á Grámullu



Skömmu fyrir jól afhenti Leonard Íþróttasambandi fatlaðra veglegan styrk eftir sölu á Grámullu úr skartgripalínunni Flóru Íslands. Hálsmen og eyrnalokkar sett Grámullu úr Flóru Íslands voru seld til styrktar íþróttastarfi fatlaðra barna og var styrkurinn afhentur á æfingu hjá frjálsíþróttahópi 13 ára og yngri.
 
Sif Jakobsdóttir og Eggert Pétursson hönnuðu skartgripina og vill Íþróttasamband koma á framfæri innilegu þakklæti til þeirra og Leonard.
 
Af heimasíðu Leonard
 
Flóra Íslands / Styrktarsjóður Leonard
Flóra Íslands er styrktarsjóður Leonard. Hann var stofnaður árið 2008.
Skartgripirnir eru hannaður af Sif Jakobs og Eggert Péturssyni og fara ávallt í sölu í byrjun desember.
 
Á síðustu árum þá hefur Flóra Íslands styrkt Neistann, styrktarfélag hjartveikra barna, blind börn á Íslandi, Dropann, styrktarfélag barna með sykursýki, börn með Downs-heilkenni, börn með gigt og fötluð börn.
 
Nú í ár mun Flóra Íslands styrkja Einstök börn.

Mynd/ Aftari röð frá vinstri: Sveinn Áki Lúðvíksson formaður ÍF, Theodór Karlsson frjálsíþróttaþjálfari, Sævar Jónsson og Helga Daníelsdóttir eigendur Leonard. Fremri röð frá vinstri: Hilmar Björn iðkandi, Hafliði iðkandi og Linda Kristinsdóttir frjálsíþróttaþjálfari.