Helgi Íþróttamaður ársins hjá Sport.is



Spjótkastarinn Helgi Sveinsson er íþróttamaður ársins 2014 að mati ritstjórnar Sport.is. Ritstjórn vefsíðunnar stóð fyrir árlegri kosningu sín á milli og sigraði Helgi með nokkrum yfirburðum. Helgi átti gott ár og er að því loknu ríkjandi Heims og Evrópumeistari í spjótkasti fatlaðra.

Helgi Sveinsson varð Evrópumeistari fatlaðra í spjótkasti á Evrópumeistaramótinu sem fram fór í Swansea í haust. Helgi kastaði lengst 50,74 metra og er nú ríkjandi Heims og Evrópumeistari í spjótkasti. Á árinu setti Helgi einnig Íslandsmet í spjótkasti þegar hann kastaði 51,83 metra.

Nánar á Sport.is

Mynd/ Heiða