Davíð Þór Torfason vann Sjómannabikarinn 2015



Nýárssundmóti fatlaðra barna og unglinga 2015 var að ljúka í Laugardalslaug þar sem sundmaðurinn Davíð Þór Torfason úr Fjölni vann besta afrek mótsins og hlaut fyrir vikið Sjómannabikarinn.

Davíð vann besta afrek mótsins í 50m skriðsundi er hann kom í bakkann á tímanum 29,77 sek.

Nánar verður greint frá Nýárssundmótinu síðar í kvöld.

Mynd/ Davíð Þór fyrir miðju ásamt foreldrum sínum í Laugardalslaug í dag.