Tilkynnt var um val á Íþróttafólki Reykjavíkur í vikunni. Í tilefni dagsins bauð borgarstjórinn, Dagur B. Eggertsson, til móttöku í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Allt frá árinu 1979 hefur stjórn Íþróttabandalags Reykjavíkur valið Íþróttamann Reykjavíkur og var þetta því í 36.sinn sem hátíðin fór fram. Í ár voru í annað sinn kjörin Íþróttakarl og Íþróttakona Reykjavíkur auk þess sem að Íþróttalið ársins í Reykjavík var valið.
Íþróttakarl Reykjavíkur 2014 er körfuknattleiksmaðurinn Martin Hermannsson úr KR en hann varð Íslandsmeistari með KR liðinu í ár ásamt því að vera í landsliði Íslands sem tryggði sér þátttökurétt í úrslitakeppni EM í fyrsta skipti í sögunni. Íþróttakona Reykjavíkur 2014 er sundkonan Eygló Ósk Gústafsdóttir úr Sundfélaginu Ægi sem er í 11.sæti á heimslistanum og 5.sæti á Evrópulistanum í 200 m baksundi í 25 metra laug. Íþróttalið Reykjavíkur 2014 er lið Vals í handknattleik kvenna sem varð bæði Íslands- og bikarmeistari á árinu.
Tíu einstaklingar og tíu lið frá sjö félögum voru verðlaunuð fyrir frábæran árangur á árinu 2014.
Einstaklingarnir sem fengu verðlaun fyrir árangurinn á árinu 2014:
• Aníta Hinriksdóttir, frjálsíþróttakona úr ÍR
• Anton Sveinn McKee, sundmaður úr Sundfélaginu Ægi
• Ásdís Hjálmsdóttir, frjálsíþróttakona úr Ármanni
• Eygló Ósk Gústafsdóttir, sundkona úr Sundfélaginu Ægi
• Helga María Vilhjálmsdóttir, skíðakona úr ÍR
• Helgi Sveinsson, frjálsíþróttamaður úr Ármanni
• Jón Margeir Sverrisson, sundmaður úr Fjölni
• Júlían Jóhann Karl Jóhannsson, kraftlyftingamaður úr Ármanni
• Martin Hermannsson, körfuknattleiksmaður úr KR
• Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, kylfingur úr GR
Nánar á heimasíðu ÍBR