Sochi opnaði nýjan heim



Jóhann Þór Hólmgrímsson er mættur út til Denver í Colorado og verður þar við æfingar í alpagreinum í vetur. Jóhann dvelur í Winter Park en ÍF TV náði spjalli við Jóhann á dögunum þegar kappinn var á leið upp í Flugstöð á leið sinni til Denver.

Framundan eru mót m.a. í Aspen þar sem Jóhann freistar þess að tryggja sér þátttökurétt á Heimsmeistaramótinu í alpagreinum sem fram fer í Panorama í Kanada í marsmánuði 2015. Jóhann varð í mars á þessu ári fyrsti íslenski karlmaðurinn til þess að keppa í alpagreinum á Vetrarólympíumóti fatlaðra.