Hádegisbrunch Blue Lagoon til styrktar ÍF



Laugardaginn 15. nóvember næstkomandi verður Blue Lagoon Hádegisbrunch til styrktar og heiðurs Íþróttasambandi fatlaðra. Að þessu sinni fer viðburðurinn fram í Eldborg í Svartsengi. Allur ágóði vegna viðburðarins rennur til Íþróttasambands fatlaðra. Miðapantanir fara fram á sales@bluelagoon.is

Í fyrra seldist upp svo það er ráð að tryggja sér miða í tæka tíð. Innifalið í viðburðinum er einnig boðskort í Bláa Lónið fyrir þá sem bóka fyrir kl. 16:00 föstudaginn 14. nóvember. Hin vinsæla hljómsveit Klassart mun koma fram og flytja hugljúfa tóna.

Verð:
3.900 kr. fyrir fullorðna, 1950 kr. fyrir 7-12 ára og frítt fyrir 6 ára og yngri.
Viðburðurinn hefst kl. 12:00 í Eldborg í Svartsengi.

Miðapantanir á: sales@bluelagoon.is