Íslandsmót ÍF í 25 metra laug 1.-2. nóvember



Dagana 1.-2. nóvember næstkomandi fer Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra í sundi í 25 metra laug fram í Ásvallalaug í Hafnarfirði.

Laugardaginn 1. november hefst upphitun kl. 14:00 og keppni kl. 15:00. Sunnudaginn 2. nóvember hefst upphitun kl. 09:00 og keppni kl. 10:00.

Skráningargögn hafa þegar verið send til aðildarfélaga ÍF en þá sem vanhagar um þau geta kallað eftir þeim á if(hjá)isisport.is
Skil skráninga eru til miðnættis mánudaginn 27. október.