Markboltaæfingar á laugardögum



Æfingar í markbolta (Goalball) fara fram í íþróttahúsi ÍFR í Hátuni á laugardögum í vetur. Allir velkomnir á æfingarnar en verkefnið er í samstarfi Íþróttafélags fatlaðra í Reykjavík og Blindrafélagsins.

Æfingarnar fara fram alla laugardaga frá kl. 11-12. Nánari upplýsingar veitir Halldór Guðbergsson í síma 663 9800.

Mynd/ Markbolti eða Goalball er afar vinsæl keppnisgrein á meðal blindra/sjónskertra og laðar jafnan að fjölda áhorfenda á t.d. Ólympíumótum fatlaðra.