Thelma og Aníta byrja vel



Haustmót Ármanns í sundi fór fram um síðastliðna helgi. Þær Aníta Ósk Hrafnsdóttir, Fjörður/Breiðablik, og Thelma Björg Björnsdóttir, ÍFR, opnuðu sundárið með stæl.

Thelma setti tvö ný Íslandsmet á mótinu, það fyrra í 800m skriðsundi er hún synti á tímanum 12:32,57mín og það seinna í 200m baksundi er hún synti á 3:40,41mín.

Aníta stórbætti Íslandsmetið sitt í 800m skriðsundi er hún synti á 10:20,48 mín.

Þrjú ný Íslandsmet í upphafi tímabils, vel gert!

Mynd/ Sverrir Gíslason: Thelma Björg setti tvö ný Íslandsmet um síðustu helgi.