Myndband frá innmarseringunni í Antverpen



Mikið er við að vera þessa dagana á Evrópuleikum Special Olympics í Antverpen en þar eru nú 29 íslenskir keppendur að láta til sín taka. Á  dögunum fór fram setningarhátíð leikanna og er hægt að sjá innmarseringu íþróttamanna í heild sinni í myndbandinu hér að neðan. Eftir að tæplega fimm mínútur eru liðnar af myndbandinu má sjá íslenska hópinn ganga inn.

Hægt er að fylgjast vel með hópnum inni á Facebook-síðu ÍF.



Mynd/ Stundum þarf að bíða dágóða stund þegar stórviðburðir fara fram og þá er gott að halda lundinni á léttari nótunum.