Matthildur fimmta á nýju Íslandsmeti



Það kom í síðustu grein! Nýtt Íslandsmet og það eina á Evrópumeistaramótinu í frjálsum þetta sinni. Metið setti Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir, ÍFR, þegar hún kom fimmta í mark í 400m hlaupi í flokki T37. Matthildur hljóp á tímanum 1:12,86 mín. en var skráð til leiks á tímanum 1:13,51 mín. Glæsileg bæting hjá Matthildi en íslenska sveitin hefur nú lokið keppni í Swansea og kemur heim með gull, brons og eitt Íslandsmet.

Hin rússneska Evgeniya Trushnikova hafði sigur í 400 metra hlaupinu en hún kom í mark á tímanum 1:06,35 mín.

Mynd/ Jón Björn - Matthildur Ylfa í 400m hlaupinu í Swansea áðan.