Matthildur og Arnar á ferðinni í dag



Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir, ÍFR, opnar daginn fyrir Ísland á Evrópumeistaramótinu í frjálsum er hún keppir í langstökki T37 kvenna. Keppnin hefst kl. 09:40 að staðartíma eða 08:40 að íslenskum tíma.

Sjö eru skráðar til leiks í langstökkinu í dag þar sem Rússinn Anna Sapozhnikova er skráð til leiks á besta stökki ársins sem er 4,54 metrar. Matthildur er skráð inn á mótið með 4,08 metra sem besta stökk ársins en von er á hörku keppni í flokknum í dag.

Arnar Helgi Lárusson, Nes, verður á ferðinni kl. 17:12 að íslenskum tíma er hann keppir í 200m hjólastólakappakstri en þetta er jafnframt hans síðasta grein á mótinu.

Matthildur stekkur fyrst á eftir:

OrderBibNamePBSB
1387

4.104.08
2589

4.544.54
3318
GermanyHAUSBERGER Maike
(T37,F37) 

4.033.79
4490

4.01
5321

4.094.09
6578

4.444.44
7492

4.334.31


Mynd/ Kári Jónsson landsliðsþjálfari fer yfir málin við langstökksgryfjuna með Matthildi á dögunum og Arnar Helgi fylgist grannt með gangi mála.