Arnar Helgi Lárusson, Nes, hefur keppni á Evrópumeistaramóti fatlaðra í frjálsum í dag þegar hann keppir í 100m hjólastólakappakstri. Keppnin hjá Arnari hefst kl. 16:21 að staðartíma eða kl. 15:21 að íslenskum tíma en Alþjóðaólympíuhreyfing fatlaðra (IPC) er með mótið í beinni netútsendingu á Paralympicsport.tv
Arnar keppir á braut númer sex (6) og er skráður til leiks á Íslandsmetinu sínu sem er 18,65 sekúndur. Heimamaðurinn Mickey Bushell þykir líklegur til afreka en Evrópumet hans í greininni er 14,47 sekúndur.
Mynd/ Arnar Helgi Lárusson keppir nú á sínu fyrsta Evrópumeistaramóti en hann er eini hjólastólakappaskstursmaður Íslands. Hér er hann á æfingu á keppnisvellinum í Swansea.