Arnar fimmti skammt frá sínu besta



Arnar Helgi Lárusson varð áðan fimmti í 100m hjólastólakappakstri í flokki T53 á Evrópumeistaramóti fatalaðra í Swansea. Arnar kom í mark á tímanum 18,86 sek. en Íslandsmet hans í greininni er 18,65 sek. Sigurvegarinn var Bretinn Mickey Bushell á 15,58 sek. en Evrópumet hans í greininni er 14,47 sek. Mótvindur var -1,4.

Ekki vildi Íslandsmetið falla þetta sinnið en eins og kemur fram var nokkur mótvindur og náði aðeins einn keppenda að bæta besta tíma ársins hjá sér en það var Frakkinn Pierre Fairbank sem hlaut silfurverðlaun á 15,78 sek.

Arnar Helgi hefur þó ekki sungið sitt síðasta hér úti í Swansea en á morgun keppir hann í 200m hjólastólakappakstri en það verður Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir sem opnar daginn fyrir Ísland á morgun þegar hún keppir í langstökki í flokki T37.

Úrslit
RankBibNameReaction TimeFnResult



1249

15.58



2230

15.78

SB
3226

16.53



4397

18.09



5385

18.86




Mynd/ Arnar Helgi keyrði vel í Swansea í dag og var ansi nærri Íslandsmeti sínu.