
Helgi hefur leik kl. 18:00 að staðartíma eða kl. 17:00 að íslenskum tíma. Mótið verður allt í beinni netútsendingu hjá paralympicsport.tv
Um 550 íþróttamenn frá 37 þjóðlöndum eru skráðir til leiks á EM að þessu sinni og teflir Ísland fram þremur íþróttamönnum. Auk Helga eru þau Arnar Helgi Lárusson, Nes, í hjólastólakappakstri og Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir, ÍFR, í langstökki og 400m hlaupi.
Mynd/ Jón Björn: Helgi Sveinsson var fánaberi Íslands við opnunarhátíðina í Swansea í kvöld.