Hulda bætti metið um einn sentimeter



Þrír frjálsíþróttamenn tóku þátt á opna ítalska meistaramótinu í frjálsum íþróttum um síðustu helgi. Þau Helgi Sveinsson, Ármann, Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir ÍFR, og Hulda Sigurjónsdóttir, Suðri, voru öll við sinn besta árangur en það var Hulda sem kom heim með Íslandsmet þegar hún kastaði kringlunni 26,06 metra. Fyrra metið frá sumrinu 2013 var 26,05 metrar svo hér var um eins sentimeters bætingu að ræða.

Hulda varpaði kúlunni 8,74 metra en Íslandsmet hennar utanhúss frá 2012 er 9,04 metrar.

Helgi Sveinsson keppti í spjótkasti og kastaði best 49,77 metra svo Íslandsmet hans frá maímánuði upp á 51,83 metra stóð óhaggað.

Matthildur Ylfa var við sína bestu tíma í 100 og 200 metra hlaupi í flokki T37 en hún kom í mark á 15,99 sekúndum í 100m hlaupi og 31,82 sekúndum í 200m hlaupi. Þá stökk Matthildur lengst 4,08 metra í langstökki en Íslandsmet hennar er 4,28 m.

Keppendurnir komu heim til Íslands í gærkvöldi en Helgi Sveinsson hélt áfram til Frakklands þar sem hann keppir á næstu dögum og kemur aftur til landsins þann 5. júní næstkomandi.

Mynd/ Hulda Sigurjónsdóttir keppir hér í kúluvarpi á Íslandsmóti ÍF 2013 en hún jafnaði Íslandsmet sitt í kringlukasti á Ítalíu um helgina.