Ekkert lát á bætingum hjá Arnari



Í gær setti Arnar Helgi Lárusson þrjú ný Íslandsmet í hjólastólaakstri í Sviss þegar hann keppti 100m, 200m og 800 metra sprettum. Arnar sem hefur verið ytra við æfingar og keppni nánast allan maímánuð á aðeins eina keppni eftir en það er sjálft maraþonið næsta sunnudag.

Íslandsmetin sem Arnar Helgi setti í gær:

100m - 18,65 sek. (bætti tímann frá helginni úr 19,86 sek.)
200m - 33,35 sek. (bætti tímann frá helginni úr 34,55 sek.)
800m - 2:26,34 mín. (bætti tímann frá helginni úr 2.39,40 mín.)

Mynd/ Arnar Helgi ásamt þeim Helga Sveinssyni og Kára Jónssyni en Helgi rétt eins og Arnar er í fantaformi um þessar mundir og kom heim með nýtt Íslandsmet í spjótkasti og lengsta kast ársins í öllum flokkum fatlaðara til þessa þegar hann sendi spjótið 51,83 metra.