Blue Lagoon bikarinn í sundi 2014




Bikarkeppni Íþróttasambands fatlaðra í sundi fer fram í Kópavogslaug laugardaginn 7. júní.
Skráningar sendist á thor@lsretail.com með cc á if@isisport.is

Þeir sem enn hafa ekki fengið skráningargögn geta haft samband við skrifstofu á if@isisport.is eða í síma 5144080.
Skráningarfrestur er til miðnættis sunnudaginn 1. júní
 
Upphitun hefst kl. 14:00
Keppni kl. 15:00


Fyrirkomulag bikarkeppni skv. reglubók ÍF
·         Hvert lið má senda tvo (2) keppendur í hverja grein og hver keppandi má synda í mest þrem (3) greinum.
·         Félag má senda B-lið og C-lið til keppninnar með þeim takmörkunum að sundmaður í A-liði félagsins getur ekki keppt í B-liði né heldur í C-liði og öfugt.
·         Með skráningum skal fylgja keppendalisti og þar skráðir þeir varamenn sem koma til með að synda á mótinu. Þeir varamenn sem ekki eru á keppendalista fá ekki að synda.
·         Sundmenn sem hafa verið skráðir til leiks með meira en einu félagi á sundmót á vegum ÍF eða félaga innan þess á yfirstandandi sundári eru ekki gjaldgengir í bikarkeppni.
·         Stig eru veitt fyrir hvert sund samkvæmt stigaformúlu ÍF í flokki viðkomandi sundmanns.
·         Stigahæsta félagið hlýtur nafnbótina Bikarmeistarar ÍF í sundi og fær að launum farandbikar.
·         Geri sundamaður ógilt fer fram aukariðill í viðkomandi grein í lok mótsins og keppir þá varamaður/varamenn í stað þess sundmanns/sundmanna sem ógilt gera.