Íslandsleikar Special Olympics í knattspyrnu 2014



Sunnudaginn 25. maí kl. 12.15 – 15.00 á fara Íslandsleikar Special Olympics í knattspyrnu fram á KR-vellinum. Verkefnið er samstarfsverkefni Special Olympics á Íslandi, KSÍ, KRR og KR. 
 
Keppt verður í Unified knattspyrnu í 7 manna liðum og má skrá allt að 3 varamenn. 4 fatlaðir og 3 ófatlaðir eru í hverju liði, karla og konur  keppa saman

Ef félög ná ekki í 7 manna lið skrá þau inn nöfn einstaklinga og lið verða sett saman frá fleiri félögum eða fleiri varamenn settir í lið sem eru til staðar.
 
Eins og áður er óskað eftir því að skráð verði í getumeiri og getuminni flokk

Síðasti skiladagur skráninga er föstudagur 16. maí
Vinsamlega skilið skráningum á netfang  gulli@ksi.is með cc á if@isisport.is