Fimm gull dreifðust á fimm félög



Íslandsmótið í sveitakeppni í boccia fór fram á Akureyri um helgina. Gríðarleg spenna var í keppninni í 1. deild þar sem keppendur máttu bíða eftir niðurstöðum reiknimeistaranna til að fá úr því skorið hver hefði hreppt gullið. Sveit Eik-D fagnaði sigri en fimm gull voru í boði í sveitakeppninni og skiptust þau niður á fimm mismunandi félög. Bæði heimaliðin Eik og Akur lönduðu gulli en það gerðu líka Gróska, ÍFR og Ösp.

Úrslit Íslandsmótsins í sveitakeppninni í boccia:

Sveitakeppni: 1. deild
1. sæti Eik – D: Stefanía Daney Guðmundsdóttir, María Dröfn Einarsdóttir og Magnús Ásmundsson
2. sæti ÍFR – A: Bjarni Þór Einarsson, Hjalti Bergmann Eiðsson og Vigdís Pálsdóttir
3. sæti Nes – A: Vilhjálmur Jónsson, Sigríður Karen Ásgeirsdóttir og John William Boyd
 
Sveitakeppni: 2. deild
1. sæti Gróska – A: Jón Sigfús Bæring, Ómar Örn Ólafsson og Sævar Örn Guðmundsson
2. sæti ÍFR – F: Anna Elín Hjálmarsdóttir, Lovísa Pálsdóttir og Þorbjörg Guðmundsdóttir
3. sæti Ösp – B: Ína Valsdóttir, Katrín Guðrún Tryggvadóttir og Þórdís Erlingsdóttir
 
Sveitakeppni: 3. deild
1. sæti: Akur F: Helga Helgadóttir, Katrín María Karlsdóttir og Unnur Marta Sverrisdóttir
2. sæti: Völsungur C: Anna María Bjarnadóttir, Þorgerður Þórðardóttir og Bryndís Benediktsdóttir
3. sæti: Eik H: Jón Óskar Ísleifsson, Sigrún Ísleifsdóttir og Sævar Bergsson
 
Rennuflokkur sveitakeppni Íslandsmót:

1. sæti: ÍFR A: Þorsteinn Sturla Gunnarsson og Þórey Rut Jóhannesdóttir
2. sæti: Eik A: Karl Guðmundsson
3. sæti: Ösp A: Kristján Vignir Hjálmarsson og Sigrún Sól Eyjólfsdóttir
 
BC1-4 sveitakeppni Íslandsmót:
1. sæti: Ösp A: Kristín Jónsdóttir og Hulda Klara Ingólfsdóttir
2. sæti: Gróska A: Aðaleiður Bára Steinsdóttir og Steinar Þór Björnsson
3. sæti: ÍFR A: Valgeir Árni Ómarsson

Mynd/ Verðlaunahafar í sveitakeppninni í 2. deild, fyrir miðju er gullsveit Grósku en hana skipuðu Jón Sigfús Bæring, Ómar Örn Ólafsson og Sævar Örn Guðmundsson.