Lengi lifir í gömlum glæðum


Akur átti góðu gengi að fagna á Íslandsmótinu í borðtennis sem fram fór á Akureyri um helgina. Viðeigandi þar sem félagið fagnar 40 ára afmæli sínu á þessu ári. Liðsmenn Akurs unnu til fjögurra gullverðlauna í einstaklingskeppninni og þá var annar sigurvegarinn úr tvíliðaleiknum einnig frá Akri.

Lengi lifir í gömlum glæðum en refirnir og reynsluboltarnir þeir Elvar Thorarensen og Jón Heiðar Jónsson tóku báðir þátt í mótinu. Jón Heiðar hafði sigur í sitjandi flokki karla en Elvar var sigurvegari í bæði standandi flokki karla sem og í opnum flokki. Þess má einnig geta að Jón Heiðar er einnig stjórnarmaður hjá Íþróttasambandi fatlaðra.

Þá vann ÍFR til tveggja gullverðlauna þar sem Hákon Atli Bjarkason hafði sigur í tvíliðaleik með Jóni Heiðari frá Akri og Guðmundur Hafsteinsson frá ÍFR hafði sigur í flokki þroskahamlaðra.

Borðtennis Íslandsmót:

Tvíliðaleikur:

1.    sæti. Hákon Atli Bjarkason ÍFR / Jón Heiðar Jónsson Akur
2.    sæti. Kolbeinn Jóhann Pétursson Akur / Stefán Thorarensen Akur
3.    sæti. Baldur Jóhannesson ÍFR / Guðmundur Hafsteinsson ÍFR
4.    sæti. Inga Hanna Jóhannesdóttir ÍFR / Sigurður Andri Sigurðsson ÍFR

Konur:
1.    sæti Guðrún Ólafsdóttir Akur
2.    sæti. Inga Hanna Jóhannesdóttir ÍFR  
3.    sæti. Bjarney Guðrún Jónsdóttir Akur

Standandi karlar:
1.    sæti. Elvar Thorarensen Akur
2.    sæti. Kolbeinn Jóhann Pétursson Akur
3.    sæti. Baldur Jóhannesson ÍFR

Sitjandi flokkur:
1.    sæti. Jón Heiðar Jónsson Akur
2.    sæti. Hákon Atli Bjarkason ÍFR
3.    sæti. Bjarney Guðrún Jónsdóttir Akur

Þroskahamlaðir:
1.    sæti. Guðmundur Hafsteinsson ÍFR
2.    sæti. Stefán Thorarensen Akur
3.    sæti. Sigurður Andri Sigurðsson ÍFR

Opinn flokkur:
1.    sæti Elvar Thorarensen Akur
2.    sæti. Jón Heiðar Jónsson Akur
3.    sæti. Hákon Atli Bjarkason ÍFR

Mynd/ Jón Heiðar ásamt dóttur sinni Bjarneyju Guðrúnu sem hafnaði í 3. sæti í sitjandi flokki. Jón Heiðar hefur marga fjöruna sopið í borðtennis en Bjarney var að keppa á sínu fyrsta móti.