Lokadagurinn runninn upp



Þá er komið að síðasta keppnisdeginum hér á Vetrarólympíumóti fatlaðra í Sochi. Erna Friðriksdóttir lokar mótinu fyrir Íslands hönd er hún keppir í stórsvigi á eftir. Stórsvigskeppni kvenna hefst kl. 09:30 að staðartíma eða kl. 05:30 að íslenskum tíma. Stórsvigskeppnin í sitjandi flokki hefst 10:35 að staðartíma eða 06:35 að íslenskum tíma.

Í kvöld fer svo fram lokaathöfn Vetrarólympíumótsins og verður íslenski hópurinn kominn heim til Íslands seinni partinn á morgun.

Keppnisdagskráin í stórsvigi, sitjandi flokkur kvenna

Mynd/ Erna keppir í stórsvigi á eftir.