Keppni í alpagreinum er lokið á Vetrarólympíumóti fatlaðra í Sochi. Keppni í stórsvigi í flokki sitjandi kvenna var að ljúka þar sem Erna Friðriksdóttir hafnaði í 9. sæti á samanlögðum tíma, 3:31,19 mín.
Þau Erna Friðriksdóttir og Jóhann Þór Hólmgrímsson hafa lokið keppni og í kvöld fer fram lokaathöfnin og er íslenski hópurinn væntanlegur heim á morgun, 17. mars.
Á vetrarólympíumótinu tókst Ernu að ljúka keppni í bæði svigi og stórsvigi en Jóhann lauk keppni í stórsvigi en féll úr leik í fyrri umferðinni í svigi.
Úrslit í stórsvigi í stitjandi flokki kvenna
Mynd/ Erna á leið í mark í seinni umferðinni í stórsviginu.