„Þetta var mjög góð reynsla og frábært að fá þetta tækifæri,“ sagði Jóhann Þór Hólmgrímsson áðan en hann hefur nú lokið þátttöku sinni í Vetrarólympíumóti fatlaðra í Sochi. Jóhann keppti í svigi og stórsvigi og ætlar sér enn ofar á listann á næstu fjórum árum.
Jóhann var síðastur í mark eftir fyrri ferðina í dag á tímanum 1.56,84 mín. en seinni ferðin var 1.41,59 mín. svo hann stórbætti tímann sinn og hafnaði í 23. sæti. Svisslendingurinn Christoph Kunz hafði sigur í keppnin á heildartímanum 2.32,73 mín.
Jóhann er þar með orðinn fyrsti Íslendingurinn sem lýkur keppni í alpagreinum karla en hann mátti sætta sig við að vera úr leik í fyrri umferð í svigkeppninni á dögunum en lauk keppni í dag þar sem síðari ferðin var mun betri en sú fyrri.
Úrslit - stórsvig, sitjandi flokkur karla
Mynd/ Jóhann Þór skömmu áður en hann kemur í mark í seinni ferðinni í stórsviginu í Sochi í dag.