Sochi: 3 dagar til stefnu



Í dag eru 3 dagar þangað til Vetrarólympíumót fatlaðra verður sett í Sochi í Rússlandi. Sir Philip Craven forseti Alþjóðaólympíuhreyfingar fatlaðra (IPC) lenti í Sochi eldsnemma í morgun.

Þetta verður í fjórða og síðasta sinn sem Craven verður forseti IPC á meðan Vetrarólympíumóti stendur. Craven er breskur og tók sjálfur þátt í fimm Ólympíumótum í keppni í hjólastólakörfubolta.

Craven sagði m.a. við komuna til Rússlands að hann gerði sér fyllilega grein fyrir því hvað væri að gerast: „…will leave global politics to the politicians.“ Sagði Craven og átti þá við stöðuna sem komin er upp hjá Rússum og Úkraínumönnum. Craven sagði mótshaldara og IPC fylgjast grannt með framvindu mála og að þeirra helsta mál væri að tryggja góða framkvæmd mótsins og tryggja öryggi þátttakenda.

Þá hefur Ólympíumótseldurinn verið á ferðinni um Rússland en hann er nú kominn til Sochi og verður tendraður við „Paralympic Flame Lighting Ceremony“ í Ólympíugarðinum á morgun.

Hér má svo nálgast kynningu á sterkum keppendum í Alpagreinum fatlaðra á mótinu en búist er við því að íþróttamenn frá m.a. Frakklandi, Þýskalandi og Spáni muni láta vel að sér kveða en sem dæmi þykir hin tvítuga Marie Bochet frá Frakklandi líkleg til afreka með fimm gullverðlaun í farteskinu af heimsbikarmótunum 2013.

Mynd/ Sir Philip Craven fékk góðar móttökur í Sochi í morgun.